| 
 
 
 
 Senn ganga heilög jól i garð: hátíð ljóssins. Hækkandi sól fagnað. Já; hún er þarna þó veður gerist válynd og við eygjum hana ekki 
 á stundum. Lampinn sem stöðugt  logar á þó hulinn geti  verið sjónum. Minnir á orð Litla prinsins: 
 
 það mikilvægasta er ósýnilegt augunum. 
 
 Eins og hulin sólin, eru hin raunverulegu  verðmæti þarna nú samt.
 
 
 
 
 Með hæstu virðing herrans lýðir horfi á lampa þann. Hún vermir, hún skín
 og hýrt gleður mann. 
 
 (Bjarni Gissurarson.  Samlíking sólar.17. öld). 
 
 
 Gleðileg jól og góða drauma nær og fjær! Draumur um frið á Jörð.
 
 
 #
 
 
 
 
 
 |