Alþjóðasvefndagurinn er
nú haldinn árlega í mars.
Er það að tiltstuðlan
Alþjóðasvefnfélagsins.
Í ár taka um 70 lönd
þátt og eru einkunnarorð
þessa svefnárs, sofðu vel
og lifðu betur.
Það er ánægjulegt að sjá
aukna áherslu á mikilvægi
svefns fyrir andlega sem
líkamlega líðan og heilsu.
Svefnrannsóknum fleytir
fram og almennt er góður
svefn talin ein grunnstoð
heilbrigðra lífsgæða og
bættrar lýðheilsu.
En náttúrulegur svefn
er þó fyrirbæri sem
margir ná ekki af
sjálfsdáðum og þurfa
að leita á náðir svefn-
og/eða kvíðalyfja en
notkun þeirra er geysi
mikil hér á landi.
Ýmislegt er þó hægt
að gera með einföldum
svefnráðum eins og
öndunaræfingum og
hugrænum aðferðum.
Og nauðsynlegt að
hafa góða reglu á því
hvenær gengið er
til náða og vaknað
að morgni.
Benda má á vef
Erlu Björnsdóttur,
sálfræðings og
doktors í svefnfræðum
varðandi góð svefnráð,
www.betrisvefn.is
Svefnhvíldir eru öllum
nauðsynlegar til
endurnýjunar líkams-
og sálarkrafta.
Og sömuleiðis þær
hvíldir frá veraldlegu
amstri daganna sem
draumsvefninn vetir.
En þá er m.a. talið
að endurröðun eigi
sér stað í minni og
úrvinnsla á tilfinninga-
reynslu vökunnar
sem leiði til aukins
jafnvægis, yfirsýnar
og innsýnar í eigin
tilfinninga-og hugarheim
í daglegu lífi. Og þar
með betri sjálfsstjórnar
og siglingafærni í
ölduróti daganna.
Alla dreymir á hverri nóttu
en sumir eiga bágt með
að trúa þessu, segjast aldrei
dreyma; þeir muni enga
drauma. En rannsóknir
á hinum svokallaða
draumsvefni, sýna fram á
að alla dreymi á vissum
tímabilum svefns yfir nóttu.
Vitundin vakir á meðan
við sofum...
Það að hlúa að svefninum
opnar í leiðinni á aukna
árvekni gagnvart eigin
heilsu og líðan.
Og það að vinna með
draumana, tekur jú tíma,
en er dýrmætur þáttur
sjálfsvinnu, sjálfsræktar
og sjálfsþekkingar.
Fyrir utan það hve oft er
góð hvíld í draumalandinu
þegar ferðast er handan
rúms og tíma og kyrrleiki
kærleika og fegurðar ríkir,
eða heilu ævintýrin upplifuð..
Léttleiki og leikgleði og
skapandi táknmál drauma,
gefa aukna orku, von
og styrk að vakna aftur
til hins nýja dags og takast
á við verkefnin sem bíða.
Sjáum þau þá etv. með
nýjum augum.
Gott dæmi um gefandi
draumsvefn eru ýmsir
draumar barna eins og
eftirfarandi draumur
úr draumasafni Skuggsjár
frá 5 ára stúlku á Akureyri
um ljósið og ljósálfana,
vitnar um:
Hvert ferðu þegar þú sofnar?
Nú auðvitað inn í ljósið!
Og hvað gerirðu þar?
Hitti ljósálfana!
Ekki eru þó allir draumar
þægilegir; draumar eiga
sér ýmist bjarta eða
dimma ásýnd.
Bæði getur svefn reynst
þungur og draumar
sömuleiðis.
Oft er talið að þungur
svefn og þungir draumar,
tjái álag og angist dreymanda.
En geti líka verið forspá,
eins konar viðvörunar-
draumar um ókomna tíð
eða jafnvel heilsufar/veikindi.
En er ekki lífið borið
uppi af samspili ljóss
og skugga?
Að finna jafnvægi,
eitt allsherjar
þroskaverkefni..
Hamlet Danaprins tjáir
sig um þunga drauma
í samnefndu leikverki
Shakespear í þýðingu
Helga Hálfdánarsonar:
Drottinn minn, ég gæti verið
luktur í hnotskurn
og þótzt konungur
í endalausum geimi
ef ég aðeins hefði ekki
þunga drauma.
#
|