| 
 
 
 Þessa Hvítasunnu þegar veðurguðir storma yfir, og árnar sveiflast eins og 
 silfurband um dali, leita 
 leiðsludraumar skáldsins frá Laxamýri á hugann, (en stormur í draumi er talinn tákna umrót í lífi eða tilfinningum, erfiðleika að sigrast á og upprisu;
  í þjóðtrúnni voru óviljugir 
 hestar fyrir stormi, eða að ríða  dökkum hesti en einnig 
 þurrt hey í göltum): 
 
 
 
 Ef ég aðeins gæti unnið stórar þrautir, stigið föstum fæti fram á huldar brautir, gæti ég rakið lífsins leyndu þætti, látið hjörtun slá með orðsins mætti, tryði ég mínum ljúfu leiðsludraumum. 
 
 
 
 Laxá í Aðaldal streymir 
 dreymandi fram allt frá
 upptökunum í Mývatni, til fagurra hólma og árósa 
 til sjávar norðan Laxamýrar, hvar Jóhann Sigurjónsson, 
 skáld, höfundur að einu 
 fyrsta íslenska nútímaljóðinu,  Sorg, fæddist árið 1880. 
 
 
 
 Laxá í Aðaldal: lífæð og drottning dalsins. Allra fallvatna drottning.
 
 
 
 
 Íslensk þjóðfræði eiga
 Hallfreði Erni Eiríkssyni, 
 (1932-2005), sem sótt 
 hafði menntun til Tékklands 
 og Írlands, mikið að þakka.  Hallfreður starfaði í áraraðir 
 við Stofnun Árna Magnússonar, 
 - áður Handritastofnun Íslands -,  og skráði gífurlegt magn af
 frásögnum af fólki og fyrirbærum 
 um land allt ásamt frásögnum 
 Vestur-Íslendinga í Kanada, en þær skráði hann með konu sinni, 
 Olgu Maríu Franzdóttur. 
 
 
 
 Þessar frásagnir voru hljóðritaðar 
 og eru ein merkasta heimild um 
 þjóðhætti, þjóðtrú og drauma,
 flokka drauma og handanheims  reynslu, en líka tónlistararf, einkum rímur, sem fyrirfinnst 
 hér á landi og þó víðar væri leitað.
 Á meðal þeirra eru merkar 
 draumfrásagnir frá byggðunum 
 við Laxá og af andlegri reynslu.  Lesa má um þessar sagnir 
 á vef Ísmús, www. ismus. is  En Ísmús - íslenskur músík og menningararfur - er 
 gagnagrunnur, sem Tónlistarsafn Íslands 
 og Stofnun Árna Magnússonar í 
 íslenskum fræðum, reka saman.
 
 
 
 
 Hallfreður átti ófáar ferðirnar til veiða á bökkum hinnar seiðmögnuðu Laxár en jarðvegurinn á bakkanum
 við fornbýlið Hofsstaði, 
 hefur reynst varðveita afar vel  mögnuð sannindi um fyrstu 
 spor þjóðar, búskapar- og 
 lifnaðarhætti, og mögulegan 
 átrúnað á yfirnáttúruleg öfl.  
 
 
 
 Ef forfeðurnir féllu með
 sæmd, var þeim vís eilífðarbústaður í öðrum heimi... En teikn á lofti nútímans og falsraddir ýmsar, benda
 á mögulegt fall í vansæmd: 
 að draumbliki hafi verið 
 slegið í augu þjóðar... Tími að eignast rödd og vakna! Og finna hjartslátt lífsins: 
 
 
 
 
 Líkt og leiftrið bjarta loftið regnvott klýfur, eða óspillt hjarta ástin fyrsta hrífur, þannig skáldin allt í einu vinna alla þá, sem lífsins hjartslátt finna, væri ég aðeins einn af þessum fáum. 
 
 
 
 (Jóhann Sigurjónsson, 1880-1919; Úr: Væri ég aðeins einn af þessum fáu; Ljóðabók Jóhanns Sigurjónssonar; AB, 1994).
 
 
 
 
 
 *
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 |