Líkamsklukka okkar
Íslendinga hefur ekki
verið í takt við hljómfall
og hrynjandi náttúrunnar
um hálfrar aldar skeið.
Hverju sætir?
Jú, klukkunni var breytt
vegna viðskiptahagsmuna
landans erlendis fyrir hartnær
50 árum en nú er öldin önnur.
Og hægt að stunda viðskipti
hvenær sólarhrings sem er,
m.a. með tilkomu Alnetsins,
stafrænnar miðlunar og síma.
Líkamsklukkan stýrist af sólartíma
og hjá okkur er sólartíminn blöffaður,
er einni og hálfri klukkustund síðar
en hann er í raun í náttúrunni:
tími til að færa klukkuna
aftur á ný og eignast þannig
rúmum tveim mánuðum fleiri
birtustundir á vetrarmorgnum.
Og enda þótt birtustundum
fækki ögn síðari hluta dags,
þá ætti það ekki að koma
að sök því það myndi gerast
á vormánuðum og í sumarbyrjun
þegar birtutími er hvað lengstur.
Mjög margir hérlendis búa
við raskaðan svefn, bæði
ónógan svefntíma og léleg
svefngæði, og eru ungmenni
þar stór hópur sem fara á
mis við endurnýjandi mátt
svefnsins í vexti og þroska.
Sofa mörg hver einungis
6 tíma þegar þau þyrftu 8-10
og þjást af slæmri klukkuþreytu
sem kemur niður á dagsformi,
aðlögun og námsárangri.
Undanfarin misseri hefur
hljóðlát bylting verið að eiga
sér stað, eins konar svefnbylting.
En vísinda- og fræðimenn sem
hafa hleypt henni af stokkum,
leggja áherslu á að ónógur
og lélegur svefn hafi hamlandi áhrif,
ekki bara á vöxt og þroska
á öllum aldursskeiðum heldur
líka á lífsgæði, vellíðan og afköst,
að ekki sé nú talað um gæði
og dýpt mannlegra samskipta.
Ekki eftir neinu að bíða hér
heima að breyta klukkunni:
hægt að styðjast við vandaða
úttekt starfshóps um breytingar á
klukkunni sem nýlega var kynnt.
Vísindamenn við Oxford háskóla
undir stjórn prófessors Colin Espie,
hafa unnið gríðarlega merkt starf
í þágu lýðheilsu og svefngæða
með útgáfu fræðsluefnis og apps
um svefn og má lesa um þau mál
inni á síðu þeirra www.sleepio.com
Einn af stofnendum The Huffington
Post árið 2005, hin eina, sanna
Arianna Huffington, hefur ritað
merka bók um svefn og svefnráð
sem Penguin gaf fyrst út árið 2016.
Óhætt er að mæla með bókinni
sem samantekt á öllu því helsta
sem nú er vitað um mikilvægi bæði
svefns og drauma fyrir líf og heilsu
og heilandi mátt svefns og drauma.
Bók Ariönnu nefnist THE SLEEP REVOLUTION
TRANSFORMING YOUR LIFE, ONE NIGHT AT A TIME.
Í bókinni leggur Arianna áherslu á
að bættur svefn geti leyst nýja orku
og vellíðan úr læðingi og hvatt til
nýrrar sóknar, í einkalífi og á vinnusviði.
Ennfremur opnað á skapandi flæði
hins tímalausa draumheims og tengt
okkur betur við dýpri svið sálarlífsins.
Ef vel á að vera, þurfa fullorðnir
7-9 tíma svefn á sólarhring.
Munum að sofa nóg og efla góð
svefngæði líka, endurnýja kynnin
af góðum svefni og tengslin
við djúp draumheims og dular,
undur lífsins í djúpi verunnar.
Svefninn læknað getur,
kveður skáldið í Svefnljóði sínu:
Eg skal vaka enn um stund,
að þér hlúa betur.
Hverja sviða, sorgarund
svefninn læknað getur.
Svefninn læknað getur.
(Kristján frá Djúpalæk, 1916-1994).
*
|