Vongleði í sál og sinni
á jólum - hátið ljóss
og hljóma - hátíð barna.
Megi góðar svefnhvíldir
og ljúfar draumnætur,
endurnæra ungar sálir,
og ljós vonar og kærleika
lýsa skært á vegferð
allra barna þessi jól.
Margrét Jónsdóttir, (1893-1971),
sem var ritstjóri barnablaðsins
Æskunnar um áratuga skeið,
kvað svo um jólin:
Og jafnan eiga jólin töframáttinn
er jólanóttin fyrsta í sér bar.
Þótt öldin hafi annan háttinn
er hjarta barnsins líkt og áður var.
*
|