sökum trúar sinnar.
En Guð lét falla á þá
svefn og sváfu þeir
uns kristni hafði verið
lögtekin, risu upp og
gátu vitnað um þróun
lífsins eftir dauðann,
sofnuðu aftur og sofa nú
að eilífu: Sjösofendur.
Hér heima hefur 27. júní,
tengst réttindum hinsegin fólks
sterkum böndum en þann dag
árið 1996, var fest í íslensk lög
að það nyti réttinda til jafns
við aðra til þess að vera
í staðfestri samvist og er
dagurinn nú alþjóðlegur
frelsisdagur hinsegin fólks.
Nóttina á eftir eða þann 28. júní
fyrir 50 árum urðu söguleg
þáttaskil í réttindabráttu
hinsegin fólks með uppþotum
á Stonewall barnum í Greenwich
Village í New York.
Samkvæmt bandarískri Gallup
könnun--langtímakönnun--sem
birt var vorið 2018 og tók til
340 þúsunda fullorðinna
einstaklinga, töldust 4.5.%
hinsegin en prósentutölur
hafa reynst ólíkar eftir
kynjum og löndum og
enn vantar samræmdar
rannsóknaraðferðir.
Eðlileg lögmál Náttúru
og þróunar sem stærstu
lýðræðisríki heims eins og
Indland eru nú að binda
í lög og má í þessu efni
nefna einróma tímamótalöggjöf
Hæstaréttar Indlands
um réttindi hinsegin fólks
frá 6. september 2018.
Afmælisbarn dagsins,
níræður öðlingur, nú í
handanheimum, benti
á sögulegt mikilvægi
27. júní--fagnaði
áfangasigrinum með
staðfesta samvist á
sínum tíma--hafði víða
farið og öðlast innsýn
í kjör allsegin fólks.
Skál fyrir heimsborgaranum,
miðbæingnum úr Brekkugötu 3
og sveitastráknum á Reynistað,
Bjarna Sveins, athafnaskáldi!
Bendum á athyglisverða þætti
á Amazon Prime streymisveitunni
- Made in Heaven - sem m.a.
fjalla um aðstæður hinsegin
fólks á Indlandi og það
mannréttindaleysi sem það
hefur löngum búið við en sem
nú er loks að verða breyting á.
Allir hafa rétt á að finna sinn
stað undir himninum:
to find their corner.
Lengi væntir vonin, eða eins
og komist er að orði í þáttunum:
Because the truth is,
you scratch any surface
and it all comes down
to the same thing: Hope.
Hope for better.
Hope for holier.
Hope for happier.
---------
We all wake up
wondering if what
Heavens planned for us,
will happen today.