| 
 
 
 
 Talandi um hávaðann í menningu okkar: það að vorjafndægur séu í dag, gleymdist alveg í æsifréttum dagsins! 
 Brauð og leikar; þegar aðeins ein hlið  máls er kynnt og poppuð upp eins og um gamanmál  sé að ræða. Til hvers? Þetta klæðir okkur illa hér á litla Skerinu og ættum að láta af slíkri ómenningu og niðurrifi í okkar litla samfélagi. 
 Hugmyndin um friðhelgi  manns og náttúru er áleitin og finnur sinn farveg sama hvað. 
 
 
 
 Draumur af Zebrahesti í Vaðlaheiði, (nálægt pólitískt umdeildri framkvæmd, Vaðlaheiðargöngum),  birtist í draumheimi nætur.  Draumráðningar taka mið af hvort zebrahesturinn hafi verið rór eða æstur. Já, kannski var þetta fyrirboða draumur fyrir daglátum sem raskaði allri reglu og skapaði óróa. En til hvers?  Skapa meiri glundroða? Friðhelgi margra að veði. 
 Yfirleitt er Zebrahestur í draumi, talinn fyrir góðu, vísar á jafnvægi og samræmi ef hann unir glaður við sitt 
 en ef ókyrr, fyrir óvæntri  ókyrrð, jafnvel skaða... 
 
 Birtist heldur ekki si sona í Vaðlaheiði þegar vetur kveður og vor heilsar. 
 
 
 Nýr tími í kortum Náttúrunnar; sama hvað, hún heldur sína rás. Barátta er í eðli lífsins, líka sama hvað - og nú er tími baráttunnar upprunnin þrátt fyrir að ítrekað sé traðkað á friðhelgi og rétti manns og annars og reglubókinni hent heima sem heiman. 
 
 Áfram skal haldið... 
 
 # 
 
 
 
 
 
 
 |