Dásamlega fallegt
og sólbjart síðdegi
á Valentínusardegi-
degi elskenda,
við yzta haf.
Um tvöleytið tóku
djúpir túrkísgrænbláir
litir í leikandi taumum
að lýsa upp himininn
til norðurs hér
í Eyjafirðinum.
Þessir litatónar og
-straumar eru ekki
alvanalegir á himni.
Heitir og djúpir á
þriðja vetrarmánuði.
Þegar þeir birtast,
er líkt og meiri dýpt
sé í himinhvolfinu,
í senn marglaga
og töfrandi.
Þrívídd, fjórvídd,
fimmvídd, etc.
Tja, hvað skal segja?
Bara njóta og ekki reyna
að smætta allt í tætlur.
Enda stendur þetta
sjónarspil stutt yfir.
Líkt og draumar
sem fylgja sínum
lit, formi og flæði
og við reynum
að grípa en svífa
hratt hjá - og eru
svo horfnir.
Túrkísgrænblár litur
er álitinn einkennandi
fyrir heilandi orku og
náttúrlegt flæði.
Oft tengdur sólinni,
eldinum og hinu
karllæga eða Yang.
Yin er kvenlæga
orkan, tengd
tunglinu og hinu
dimmleitara.
Hið bjarta og
hið dimma.
Að vinna að heildun
Yin og Yang í jafnvægu
flæði, ytra sem innra,
finna samhljóm með
náttúrunni og reglu-
bundnu flæði hlutanna
í rás sinni, taktinn
í Alheiminum, er
markmið iðkunar,
þróunar og þroska
skv. Tao eða Dao.
Veginum heim til
alls lífs og okkar
sjálfra, eins og lesa
má um í
Bókinni um veginn
og dygðina
eftir kínverska
spekinginn Laó Tse er
uppi var á 4. öld f.Kr.
Nafn hans er býsna
táknrænt og getur
þýtt gamli meistarinn
en líka gamla barnið.
Viska hins aldna
og aðlögunarhæfni
hins unga, leiðarljósið.
Lítir í draumi eru
ekki eingöngu með
sameiginlega tákn-
merkingu heldur oft
persónulegir fyrir
titekinn dreymanda.
Geta verið gluggar
til baka í minningar
bernskureynslunnar
sem fá dreymandann
til þess að staldra við
minningar af t.a.m.
persónum, hlutum
og leikföngum sem
hafa/höfðu djúpa
merkingu fyrir
viðkomandi.
Draumar barna
einkennast oft af
leikgleði sem á sér
rætur í frjóu hugarflugi
líkt og leikir, leikföng
og þykjusta.
Börnin öðlast skilning
á veröldinni í gegnum
drauma sína.
Sumir eru raunar alveg
fáránlegir!
Tími og rúm léttilega
yfirstigin í draumahöll.
Túrkísliturinn ber
í sér léttleika,
von og gleði.
Skapandi orku,
frjálsa tjáningu
og trúna á nýja
möguleika hvort
sem er í vöku eða
svefni.
Raunverulega og
eðlilega leikgleði
sem öllum er í
brjóst borin.
Eða eins og segir:
The Sky is the limit!
#
|