Íslenskt hásumar
í kortunum undir
fullu draumtungli.
Og dularmagn
náttúrunnar töfrar fram
lifandi sögur jafnt
í svefni sem vöku:
moldin vinnur aflátlega...
Blómskrúð plantna og trjáa
gleður sál og sinni;
kantgróður á þjóðvegi 1
hvað fegurstur þessi
dægrin í Eyjafirðinum.
Merkilegt að mitt í allri
tækninni, bílmenningunni,
rykinu og menguninni,
skuli hann fá þrifist!
Minnir á fleyg orð
pólska nóbelskáldsins
Isaac Bashevis Singer:
What nature
delivers to us,
is never stale.
Because what
nature creates,
has eternity in it.
*